Undanfarin ár hafa verið haldin Tækni-LEGO námskeið í skólum, á vegum ÍTR og hjá Mími símenntun. Góð reynsla hefur gefist af námskeiðunum og hafa foreldrar og börn almennt verið afar ánægð með þau.
Leiðbeinandi:
Nafn: Jóhann Breiðfjörð.
Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO (LEGO Technik).
Hefur haldið yfir 300 nýsköpunarnámskeið fyrir grunnskólanemendur undanfarin ár og fjölda fyrirlestra um skapandi hugsun bæði innan fyrirtækja og á eigin vegum.
Hefur undanfarin ár haldið fjölmörg "Tækni-LEGO námskeið" innan skóla, í félagsmiðstöðvum og á vegum Mímis símenntunar.
Uppbygging námskeiða í grunnskólum:
Á staðnum eru um 100 kíló af tækni-LEGO-kubbum sem hægt er að byggja úr.
Krakkarnir læra að nota t.d. tannhjól, gírun, mótora og fleira og fá aðstoð við að skapa sín eigin módel.
Um er að ræða frístundanámskeið sem hafa hafist að skóladegi loknum og gengið er út frá því að foreldrar greiði fyrir þátttöku barnanna.
Miðað er við að hvert námskeið sé 3 skipti sem hvert fyrir sig er einn og hálfur tími. Miðað er við að þátttakendur á hverju námskeiði séu ekki fleiri en 15. Yyfirleitt eru tveir hópar sama dag. Sá fyrri er fyrir 1.-3. bekk og sá seinni fyrir 4.-7. bekk. Hópurinn fyrir 1.-3. bekk hefur hafist um 10 mínútum eftir að þessir árgangar eru búnir í skólanum og hópurinn fyrir 4.-7. bekk strax og yngri hópurinn er búinn.
Verð fyrir 3 * 1,5 klukkutíma er: 3.500.
Uppbygging námskeiða í félagsmiðstöðvum:
Tækni-LEGO námskeið hafa einnig verið haldin í félagsmiðstöðvum en þá hefur verið örlítið annað fyrirkomulag þar sem krakkarnir þurfa þá oftast lengri tíma til að koma sér á staðinn og ekki er gert ráð fyrir því að yngstu krakkarnir séu að fara út fyrir skólann. Þessi námskeið hafa því verið fyrir 4.-7. bekk. Ef fleiri en 15 hafa skráð sig hefur hópnum verið skipt í tvennt og stundum er boðið upp á að hægt sé að skrá sig í báða hópana og vera þá 3 klukkutíma á dag í stað 1,5.
Annað fyrirkomulag:
Einnig er möguleiki að breyta námskeiðsfyrirkomulaginu eins og hentar á hverjum stað fyrir sig. Þetta á við um lengd hvers tíma og fjölda skipta. Ég hef einnig haldið námskeið á skólatíma og hver hópur hefur þá verið í tvo samliggjandi tíma (80 mínútur). Hægt er að vera með einn bekk í einu og þá hafa tveir og tveir nemendur hjálpast að. Þau námskeið hafa verið greidd af viðkomandi skólum og hef ég rukkað 14.500 fyrir hvern hóp líkt og fyrir kynningu á nýsköpun (sjá: nýsköpunarnámskeið).