Svarta vélmennið:


Lýsing á svarta vélmenninu:
- 24 ventlar (24 aðskildar hreyfingar)
- 30 lofttjakkar.
- 4 loftpumpur á knastási sem er drifinn áfram af einum 9 V LEGO mótor (notar 3,2 Amper við hámarksálag). Knastásinn gerir það að verkum að mótorinn pumpar alltaf einungis einni loftpumpu í einu.
- Þrýstingsskynjari sem stöðvar mótorinn þegar nægum loftþrýstingi er náð.
- Straumbreytir sem gefur frá sér 7 V spennu og 3.7 Amper.
Forsaga:
- Ég ætlaði að byggja annað eintak af hvíta vélmenninu og hugsanlega selja það en sá að ég gat gert betur.
Upptaka:
- Best er að hægri "klikka" á hlekkina hér að neðan og velja: "Save Target As..."og vista þannig myndböndin áður en horft er á þau.
- Einnig er hægt að smella á hlekkina hér að neðan og bíða eftir því að myndböndin hlaðist niður (gæti tekið nokkurn tíma)
Hvíta vélmennið:
.jpg)
Upptökur:
- Smelltu á hlekkina hér að neðan til að sjá myndbrot af vélmenninu.
- Ef þú getur ekki spilað myndbrotin þá geturðu sótt fría útgáfu af QuickTime player á: http://www.apple.com/quicktime/win.html
Lýsing á vélmenninu:
- 20 ventlar (20 aðskildar hreyfingar)
- 25 lofttjakkar.
- 4 loftpumpur á knastási sem eru drifnar áfram af 2 mótorum.
- 20 ára gamall LEGO straumbreytir sem gefur frá sér 13 V spennu sem knýr mótorana hraðar áfram en 9 V batteríkassi.
Forsaga:
- Hugmyndin að vélmenninu kviknaði þegar ég var að aðstoða nemanda við að búa til gripkló á Tækni-LEGO námskeiði hjá Mími símenntun eitt sumarið. Ég byrjaði svo að smíða vélmennið í kaffihléunum og svo af og til fyrir framan sjónvarpið á kvöldin um haustið.
|
|