nyskopun.com

 

Fréttir

7 verðlaunahafar af 14 í NKG 2008 voru frá skólum sem ég hafði farið með nýsköpunar-námskeið í sem er 50 %. Sjá: Verðlaunahafar NKG 2008.

1.912 hugmyndir af þeim 3.632 sem bárust í NKG 2008 bárust í kjölfar nýsköpunarkynninga. Þetta eru 52,6 %. Sjá nánar...

Heildarfjöldi nemenda í Stóru-Vogaskóla er 211. Ég fór með nýsköpunarkynningu í alla bekki nema 1. bekk. Í fyrsta bekk eru 17 nemendur. Heildarfjöldi nemenda mínus fjöldi nemenda í fyrsta bekk er því: 194. Það bárust samtals 190 umsóknir frá Stóru-Vogaskólaskóla í NKG 2008. Sjá nánar...

 

NKG 2010

Nýsköpunarnámskeið fyrir börn í 2. til 10. bekk

 

Nemendur í Tjarnarskóla

  • Nemendur í Tjarnarskóla vor 2008

 

Hvatning - skemmtun - árangur:

  • Umsókn í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda er notuð sem verkefni til að leiðbeina nemendum við hugmyndavinnu.
  • Reynslan af námskeiðunum hefur sýnt að með því að nálgast nemendurna á réttan máta er hægt að fá alla til að taka þátt í keppninni og krakkarnir senda yfirleitt inn fleiri en eina umsókn.
  • Til gamans fá þeir nemendur sem vilja að stýra LEGO-vélmenni.

Um námskeiðin:

  • Könnun sem gerð hefur verið hefur sýnt fram á að það efni sem farið er í á námskeiðunum hefur komist vel til skila og verið börnunum minnisstætt og þar með skilað tilætluðum árangri.
  • Námskeiðin í grunnskólunum hafa haft verulega hvetjandi og mælanleg áhrif á þátttöku nemenda í Nýsköpunarkeppni grunnskólanemenda undanfarin ár og verið gott innlegg í nýsköpunarkennslu hvort sem hún hefur verið með skipulögðum hætti eða ekki.
  • 1912 hugmyndir af 3632 bárust í NKG 2008 í kjölfar nýsköpunarkynninga. Þetta eru 52,6 %. Sjá: Skólalisti 2008.
  • Heildarfjöldi þátttakenda í vinnusmiðjunni 2008 var 53. Þar af voru 21 á námskeiðunum sem er 39,6%. Sjá: Þátttakendur í vinnusmiðju NKG 2008.
  • 7 verðlaunahafar af 14 voru frá skólum sem ég hafði farið með nýsköpunarnámskeið í sem er 50 %. Sjá: Verðlaunahafar NKG 2008.
  • Skólarnir sem ég fór í voru 28. Hóparnir sem ég kenndi voru 89 og kennslutímarnir voru samtals 149. Nánari upplýsingar: Skólalisti 2008.
  • Flestar umsókninar voru kláraðar í tímunum.

Um leiðbeinandann:

  • Nafn: Jóhann Breiðfjörð.
  • Starfaði í 5 ár sem hönnuður, hugmyndasmiður og ráðgjafi hjá tæknideild danska leikfangafyrirtækisins LEGO (LEGO Technik).
  • Hefur haldið yfir 300 nýsköpunarnámskeið fyrir grunnskólanemendur undanfarin ár og fjölda fyrirlestra um skapandi hugsun bæði innan fyrirtækja og á eigin vegum.
  • Hefur undanfarin misseri haldið fjölmörg "Tækni-LEGO námskeið" innan skóla, í félagsmiðstöðvum og á vegum Mímis símenntunar.
  • Vann árið 1999 í hugmyndasamkeppninni Snjallræði sem haldin var af Iðntæknistofnun.
  • Fékk frumkvöðlastuðning frá Iðntæknistofnun 1998 til að smíða á frumgerð uppfinningar sem tengist húsgagnaframleiðslu.

Verð:

  • Stærð hópa miðast við einn bekk eða allt að 30 nemendur. Þetta er gert til þess að hægt sé að sinna öllum og til að krakkarnir séu ófeimnir við að taka virkan þátt.
  • Miðað er við að hvert námskeið sé 2 kennslutímar þar sem reynslan hefur sýnt að bestur árangur næst með tveim kennslustundum fyrir hópa sem ég hef ekki heimsótt áður. Krakkarnir ná þá að klára umsóknirnar í tímanum. Þó er hægt er að skipta námskeiðunum í tvennt og hafa eina kennslustund í hverjum bekk. Það fyrirkomulag getur hetað vel í eldri bekkjadeildum (8.-10. bekkur) þar sem eldri nemendur kjósa yfirleitt frekar að vinna umsóknirnar í einrúmi.
  • Ein kennslustund er nóg til að rifja upp í bekkjum sem ég hef farið í áður.
  • Verð fyrir stakt námskeið er: 14.500
  • Magnafsláttur er í boði fyrir þá skóla sem panta fleiri en eitt námskeið.
  • Ferðakostnaður er samkomulagsatriði ef farið er út á land og reynt er að fara í fleiri en einn skóla í hverri ferð til að lækka ferðakostnað. Einnig fer hann eftir því um hve mörg námskeið væri að ræða í hverjum skóla og hvort hægt væri að halda Tækni-LEGO námskeið í skólanum eftir að skóladeginum lýkur (sjá: LEGO)

Bókanir og upplýsingar:

  • S: 4217161, GSM: 6978692 eða johann@nyskopun.com

©2009 www.nyskopun.com | 4217161 | 6978692 | johann@nyskopun.com